Sundlaug Akureyrar - rennibraut

Málsnúmer 2013010160

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 230. fundur - 24.09.2013

Farið yfir tilboð sem bárust í nýjar rennibrautir.

Íþróttaráð - 142. fundur - 21.11.2013

Farið yfir tilboð sem bárust Fasteignum Akureyrarbæjar í nýjar rennibrautir.

Íþróttaráð leggur til að valin verði tillaga frá Altis um nýja rennibraut í Sundlaug Akureyrar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 236. fundur - 17.01.2014

Rætt um stöðu á útboði vegna endurnýjunar rennibrauta í Sundlaug Akureyrar.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 237. fundur - 31.01.2014

Lögð fram stöðvunarkrafa frá kærunefnd útboðsmála dags. 24. janúar 2014.

Í ljósi úrskurðar kærunefndarinnar um stöðvunarkröfu ákveður stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar að draga útboðsferlið til baka enda hefur ekki verið gengið til samninga.