Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

237. fundur 31. janúar 2014 kl. 08:15 - 09:08 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Ólafur Jónsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðni Helgason framkvæmdastjóri
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá
Enginn mætti í forföllum formanns, Odds Helga Halldórssonar L-lista.
Ólafur Jónsson D-lista mætti í forföllum Njáls Trausta Friðbertssonar.
Eiríkur Jónsson S-lista mætti í forföllum Guðgeirs Halls Heimissonar.

Ólafur Jónsson D-lista, aldursforseti, stýrði fundi í fjarveru formanns.

1.Sundlaug Akureyrar - rennibraut

Málsnúmer 2013010160Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðvunarkrafa frá kærunefnd útboðsmála dags. 24. janúar 2014.

Í ljósi úrskurðar kærunefndarinnar um stöðvunarkröfu ákveður stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar að draga útboðsferlið til baka enda hefur ekki verið gengið til samninga.

2.Menningarhúsið Hof - rakastig í rýmum TÓNAK

Málsnúmer 2013010145Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 13. febrúar 2013 frá Grétari Grímssyni frá Verkfræðistofu Norðurlands varðandi rakamál í rýmum Tónlistarskólans ásamt frekari gögnum er varða málið.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að koma með tillögur varðandi framhald málsins á næsta fund.

3.Miðbraut 3, Hrísey - sala eignar

Málsnúmer 2014010367Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð dags. 28. janúar 2014 í eignina.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir með þremur atkvæðum að ganga að kauptilboðinu.

Sigfús Arnar Karlsson B-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Fundi slitið - kl. 09:08.