Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

230. fundur 24. september 2013 kl. 08:15 - 09:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðni Helgason
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Kristín Sigurðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Steinnes - beiðni um áframhaldandi leigu á húsinu

Málsnúmer 2013050311Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá Níelsi Karlssyni ábúanda í Steinnesi um að framlengja leigusamninginn um 3 ár.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að fara í samningaviðræður við leigutaka um áframhaldandi leigu.

2.Hlíðarfjall - stækkun skíðaleigu

Málsnúmer 2013090043Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir að nýju 2. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 22. ágúst 2013. Var áður á dagskrá stjórna FA 6. september 2013:
Erindi dags. 15. ágúst 2013 frá Guðmundi Karli Jónssyni forstöðumanni Skíðastaða í Hlíðarfjalli þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu fyrir skíðaleigu í Hlíðarfjalli til að geta haldið betur utan um reksturinn og skapað betri vinnuaðstöðu.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar erindinu til fjárhagsáætlunar 2014.

3.Sundlaug Akureyrar - rennibraut

Málsnúmer 2013010160Vakta málsnúmer

Farið yfir tilboð sem bárust í nýjar rennibrautir.

4.Fjárhagsáætlun 2014 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013090245Vakta málsnúmer

Unnið að fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 ásamt vinnu við þriggja ára framkvæmdaráætlun 2014-2016.

5.Verkfundargerðir FA 2013

Málsnúmer 2013010321Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 41. verkfundur dags. 10. september 2013.
Þórunnarstræti 99 - L og S verktakar: 8. verkfundur dags. 12. september 2013.

Fundi slitið - kl. 09:45.