Verslunarmannahelgin - Ein með öllu 2012

Málsnúmer 2012050150

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3326. fundur - 19.07.2012

Erindi dags. 10. júlí 2012 frá Vinum Akureyrar þar sem óskað er eftir að skemmtistaðir megi vera opnir um Verslunarmannahelgina til kl. 02:00 aðfararnótt föstudags og til kl. 05:00 aðfararnótt laugardags, sunnudags og mánudags.

Með vísan 25. gr. í lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað samþykkir bæjarráð að heimila veitingastöðum skv. flokki III að hafa opið um verslunarmannahelgina sem hér segir: Aðfararnótt laugardags og sunnudags til kl. 05:00 og aðfararnótt mánudags til kl. 04:00. Bæjarráð telur ekki rök fyrir að auka opnunartíma aðfararnótt mánudags frekar en heimilt er í lögreglusamþykktinni á almennum frídögum. Bæjarráð samþykkir einnig beiðni Vina Akureyrar um að aðfararnótt föstudags verði opið til kl. 02:00.

Bæjarráð - 3328. fundur - 16.08.2012

Lögð fram samantekt dags. 14. ágúst 2012 frá Vinum Akureyrar um fjölskylduhátíðina Eina með öllu 2012.

Bæjarráð þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna um verslunarmannahelgina og öllum þeim sem þátt tóku í hátíðarhöldunum.