Klettaborg - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2011090088

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 128. fundur - 30.11.2011

Í samræmi við bókanir skipulagsnefndar dagsettar 27. júlí 2011 og 24. ágúst 2011 þar sem ákveðið var að gera breytingar á deiliskipulagi Klettaborgar leggur skipulagsstjóri fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi dagsetta 30. nóvember 2011 og unna af Gísla Kristinssyni frá Arkitektur.is.

Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3313. fundur - 06.12.2011

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 30. nóvember 2011:
Í samræmi við bókanir skipulagsnefndar dags. 27. júlí 2011 og 24. ágúst 2011 þar sem ákveðið var að gera breytingar á deiliskipulagi Klettaborgar leggur skipulagsstjóri fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi dags. 30. nóvember 2011 og unna af Gísla Kristinssyni frá Arkitektur.is.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 132. fundur - 15.02.2012

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Klettaborgar var auglýst 14. desember 2011 og var athugasemdafrestur til 26. janúar 2012. Skipulagsgögn voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar og í þjónustuanddyri Ráðhúss.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd samþykkir á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" deiliskipulagsbreytinguna og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.