Lúðvík Áskelsson - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2011

Málsnúmer 2011020132

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 93. fundur - 24.03.2011

Umsókn dags. 28. janúar 2011 frá Lúðvíki Áskelssyni þar sem fram kemur að þann 5. apríl nk. verða hundrað ár liðin frá fæðingu Áskels Jónssonar söngstjóra. Af því tilefni er fyrirhugað að halda tónleika til að heiðra minningu hans og er óskað eftir fjárhagslegum stuðningi við tónleikana.

Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við erindinu en felur framkvæmdastjóra að kanna hvort aðstoða megi við móttöku tónlistarfólks og gesta.