Sómatún 1 og 3 - dagsektir

Málsnúmer 2010070016

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3234. fundur - 12.08.2010

13. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 28. júlí 2010:
Lagt var fram bréf frá skipulagsstjóra, dags. 16. júlí 2010 ásamt afriti af bréfi skipulagsstjóra til Sómatúns 1 og 3 ehf., eiganda byggingarframkvæmda að
Sómatúni 1 og 3. Í bréfinu er gerð tillaga um tímafrest og beitingu dagsekta til þess að knýja fram að byggingarsvæðið verði girt af með barnheldri girðingu vegna öryggissjónarmiða. Einnig er farið fram á að allt rusl verði fjarlægt, moldarhaugar jafnaðir út og sáð í lóðirnar. Andmælafrestur er liðinn án þess að málsaðili hafi kosið að tjá sig um málið.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra og m.v.t. 1. mgr. 57 gr. skipulags- og byggingarlaga leggur nefndin til við bæjarráð að tillagan verði samþykkt og frestur til úrbóta verði til 30. ágúst 2010.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar og að frestur til úrbóta verði til 30. ágúst 2010.