Strandgata 11 - dagsektir

Málsnúmer 2009010249

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3257. fundur - 20.01.2011

10. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. janúar 2011:
Bréf dags. 12. febrúar 2009 frá Guðvarði Gíslasyni þar sem hann óskar eftir að falla frá umsókn um skilti á húsið Strandgötu 11 en áfram er sótt um breytingar á útsogsblásara og innréttingabreytingu skv. meðfylgjandi teikningum eftir Fanneyju Hauksdóttur dags. 2. mars 2009.
Málið var áður tekið fyrir hjá skipulagsnefnd 27. maí 2010. Tilmælum um skil á fullnægjandi gögnum hefur ekki verið sinnt og andmælafrestur er liðinn án þess að athugasemdir hafi verið gerðar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að dagsektir, kr. 25.000 á dag verði lagðar á eiganda verði umbeðnum gögnum ekki skilað innan fjögurra vikna frá afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að beita dagsektum á viðkomandi eiganda.