Kjarasamninganefnd

4. fundur 27. apríl 2021 kl. 08:30 - 10:28 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2020-2021, bókun 5

Málsnúmer 2020110842Vakta málsnúmer

Áður á dagskrá kjarasamninganefndar 27. nóvember 2020.

Erindi frá Karli Frímannssyni sviðsstjóra fræðslusviðs dagsett 26. nóvember 2020 vegna bókunar 5 í nýgerðum kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kjarasamninganefnd frestar afgreiðslu og felur sviðsstjóra fræðslusviðs og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram í samræmi við unræður á fundinum.

2.Fjársýslusvið - breyting á skipuriti

Málsnúmer 2021030536Vakta málsnúmer

Bæjarráð bókaði á fundi sínum 11. mars 2021:

Lögð fram tillaga að breytingu á skipuriti fjársýslusviðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á skipuriti fjársýslusviðs og vísar málinu til kjarasamninganefndar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns hag- og áætlanadeildar á fjársýslusviði frá 1. apríl 2021.

3.Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög

Málsnúmer 2021030342Vakta málsnúmer

Bryndís Elfa Valdemarsdóttir jafnréttisráðgjafi Akureyrarbæjar fór yfir helstu breytingar á nýrri jafnréttislöggjöf og áhrif þeirra á sveitarfélög.

4.Stytting vinnuviku dagvinnufólks

Málsnúmer 2021041143Vakta málsnúmer

Umfjöllun um styttingu vinnuviku dagvinnufólks 1. janúar 2021.

5.Betri vinnutími - Þrastarlundur

Málsnúmer 2021041144Vakta málsnúmer

Kynnt tillaga að tímabundnu samkomulagi við Einingu-Iðju vegna innleiðingar á Betri vinnutíma í Þrastarlundi.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að tillaga að tímabundnu samkomulagi við Einingu-Iðju vegna innleiðingar Betri vinnutíma vaktavinnufólks i Þrastarlundi verði samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:28.