Kjarasamninganefnd

1. fundur 19. febrúar 2020 kl. 12:30 - 13:15 Fundarherbergi á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Eining-Iðja - matar- og kaffitímar starfsmanna í tímavinnu

Málsnúmer 2018060414Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um tímabundna framlengingu á samkomulagi Akureyrarbæjar við Einingu-Iðju sem samþykkt var á fundi kjarasamninganefndar 30. október 2018. Um er að ræða samkomulag vegna tímavinnustarfsmanna sem ganga vaktir á vaktavinnustöðum.
Kjarasamninganefnd samþykkir að framlengja samkomulagið til 1. nóvember 2020.

2.Stjórnendaálag forstöðumanna

Málsnúmer 2017010057Vakta málsnúmer

Unnið að endurskoðun á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hjá Akureyrarbæ.
Kjarasamninganefnd felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að útbúa tillögur að breytingum á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð til afgreiðslu.

3.Stjórnendaálag deildarstjóra

Málsnúmer 2017010004Vakta málsnúmer

Unnið að endurskoðun á reglum um stjórnendaálag deildarstjóra hjá Akureyrarbæ.
Kjarasamninganefnd telur ekki ástæðu til að gera breytingar á reglum um stjórnendaálag deildarstjóra.

4.Stjórnendaálag

Málsnúmer 2020020483Vakta málsnúmer

Kynnt tillaga um tímabundna heimild til greiðslu stjórnendaálags vegna afleysingar.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu.

Fundi slitið - kl. 13:15.