Kjarasamninganefnd

3. fundur 03. maí 2018 kl. 18:00 - 18:50 Fundarherbergi stjórnsýslusviðs
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Starfsmenn
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Endurskoðun launa fyrir vaktavinnu

Málsnúmer 2018040186Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð bæjarráðs 18. apríl 2018

Viðtalstímar bæjarfulltrúa

2017100376

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 12. apríl 2018.

Bæjarráð vísar 3. lið til kjarasamninganefndar.
Kjarasamninganefnd felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að svara erindinu með vísan í kjarasamninga.

2.Skipulagssvið - skipting í skipulags- og byggingarhluta

Málsnúmer 2018030048Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 14. mars 2018:

Lagt er til að skipulagssviði verði skipt upp í tvo hluta, skipulagshluta og byggingarhluta. Yfirmaður skipulagshluta verði skipulagsfulltrúi og yfirmaður byggingarhluta verði byggingarfulltrúi. Lögð fram tillaga sviðsstjóra að skipuriti ásamt yfirliti yfir helstu verkefni sviðsins.

Skipulagsráð tekur jákvætt í tillöguna og vísar erindinu til bæjarráðs.
Afgreiðslu frestað.

3.Upplýsingastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer

Drög að upplýsingastefnu Akureyrarkaupstaðar lögð fram til kynningar og umsagnar.
Kjarasamninganefnd telur að drög að upplýsingastefnu séu óskýr og nái ekki tilgangi sínum.

4.Slökkvilið Akureyrar - beiðni um launað námsleyfi fyrir starfsmenn

Málsnúmer 2018040280Vakta málsnúmer

Á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs 27. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:

Lögð fram beiðni frá slökkviliðsstjóra dagsett 25. apríl 2018 um að fjórum starfsmönnum slökkviliðsins verði veitt launað námsleyfi til menntunar í bráðatækni.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til kjarasamninganefndar.
Afgreiðslu frestað.

Fundi slitið - kl. 18:50.