Íþróttaráð

125. fundur 07. febrúar 2013 kl. 14:00 - 15:21 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jón Einar Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
  • Örvar Sigurgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson fundarritari
Dagskrá

1.Niðurgreiðsla æfinga- og þátttökugjalda

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Matthías Rögnvaldsson frá Stefnu hugbúnaðarhúsi mætti og kynnti TÍM, sem er rafrænt skráningarkerfi sem heldur utan um þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Íþróttaráð þakkar Matthíasi fyrir heimsóknina og kynninguna.

2.Heimasíða íþróttamála

Málsnúmer 2013020027Vakta málsnúmer

Efnistök heimasíðu íþróttamála lögð fram til kynningar og umræðu.

3.Ánægjuvogin - styrkur íþrótta

Málsnúmer 2013020028Vakta málsnúmer

Niðurstöður könnunar meðal ungmenna sem stunda íþróttir innan aðildarfélaga ÍBA lagðar fram til kynningar. Rannsóknir og greining vann könnunina á landsvísu með ÍSÍ og UMFÍ.

4.Íþóttafélagið Þór - aðkoma Akureyrarbæjar að breytingum á anddyri Hamars/Bogans

Málsnúmer 2012120018Vakta málsnúmer

Bókun og afgreiðsla stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar frá 14. desember 2012 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:21.