Framkvæmdaráð

254. fundur 20. júlí 2012 kl. 09:07 - 10:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Helgi Snæbjarnarson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Bergur Þorri Benjamínsson fundarritari
Dagskrá

1.Sorpmál - minnisblað um Moltu og Flokkun

Málsnúmer 2012070085Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar minnisblað frá Karli Guðmundssyni verkefnastjóra hagþjónustu dags. 21. júní sl. þar sem gerð er grein fyrir rekstrarkostnaði við sorphirðu og rekstrarforsendur fyrir Moltu og Flokkun.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur fór yfir minnisblaðið.

2.SVA - minnisblað um rekstur og staða mála almennt

Málsnúmer 2012070084Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar minnisblað frá Karli Guðmundssyni verkefnastjóra hagþjónustu dags. 15. mars sl. um rekstur SVA.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur fór yfir rekstur SVA og stöðu mála vegna fjárfestinga og aðstöðu og umhverfi SVA í miðbæ Akureyrar.

Fundi slitið - kl. 10:45.