Fræðslu- og lýðheilsuráð

45. fundur 08. janúar 2024 kl. 13:00 - 14:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Tinna Guðmundsdóttir
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Rannveig Elíasdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá

1.Virk efri ár

Málsnúmer 2022081092Vakta málsnúmer

Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnastjóri lýðheilsumála gerði grein fyrir starfsemi Virkra efri ára á líðandi og komandi ári.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

2.Frístundastyrkur tómstundaávísun

Málsnúmer 2006040018Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála lagði fram til kynningar og umræðu að nýju minnisblað varðandi frístundastyrk Akureyrarbæjar árið 2024.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir að frístundastyrkur fyrir árið 2024 verði 50.000 kr.

3.Afrekssjóður Akureyrar

Málsnúmer 2012100159Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála fór yfir störf stjórnar Afrekssjóðs í desember 2023 og lagði fram tillögur að heiðursviðurkenningum fræðslu- og lýðheilsuráðs fyrir störf að félags-, íþrótta- og æskulýðsmálum.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

4.Rekstrar- og þjónustusamningar við aðildarfélög ÍBA 2024-2028

Málsnúmer 2023110398Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála lagði fram til afgreiðslu drög að rekstrar- og þjónustusamningum við aðildarfélög ÍBA sem eru að sjá um rekstur íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir drög að rekstrar- og þjónustusamningum við aðildarfélög ÍBA sem eru að sjá um rekstur íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar og vísar þeim til bæjarráðs.

5.Rekstur fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023

Málsnúmer 2023031680Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstrarniðurstöðu fræðslu- og lýðheilsusviðs jan. - nóv. 2023 með áherslu á málaflokka 102 og 106.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

6.Íþróttafélaginn - stuðningur við íþróttaiðkun barna með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2022111455Vakta málsnúmer

Umræður um stöðuna á verkefninu Íþróttafélaginn - stuðningur við íþróttaiðkun barna með fjölþættan vanda.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Frestað til næsta fundar.

7.Barnvænt sveitarfélag - gátlistar

Málsnúmer 2023091180Vakta málsnúmer

Lagt fram barnvænt hagsmunamat fundarins.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar dagskrárlið 2 kynningar hjá ungmennaráði Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 14:30.