Félagsmálaráð

1194. fundur 01. október 2014 kl. 14:00 - 16:33 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Bryndís Dagbjartsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Grófin - geðverndarmiðstöð - ósk um fjárhagsstuðning

Málsnúmer 2014030277Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. mars 2014 og 25. ágúst 2014 frá stjórn Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis þar sem óskað er eftir viðræðum um fjárstuðning við Grófina - geðverndarmiðstöð. Málið var áður á dagskrá félagsmálaráðs 28. apríl 2014.
Jafnframt lagði Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar fram greinargerð dagsetta 26. september 2014 með yfirliti yfir þjónustu við geðfatlað fólk á Akureyri.
Ólafur Örn Torfason forstöðumaður búsetuþjónustu geðfatlaðra sat fund félagsmálaráðs undir þessum lið.

Soffía og Ólafur Örn fóru yfir þjónustu Akureyrarbæjar við fólk með geðraskanir og fólk í vímuefnavanda, samstarf við aðra opinbera aðila sem veita þjónustu á sviðinu, svo og félagasamtök. Grófin - geðverndarmiðstöð sem rekin er af Geðverndarfélagi Akureyrar er nýjasta úrræðið á Akureyri í þjónustu við fólk með geðraskanir. Félagið hefur óskað eftir styrk frá Akureyrarbæ um rekstur miðstöðvarinnar. Félagsmálaráð þakkar kynninguna og felur framkvæmdastjóra búsetudeildar að óska eftir að fulltrúar Geðverndarfélagsins mæti á næsta fund ráðsins til að veita nánari upplýsingar um Grófina.

2.Félagsmálaráð - gjaldskrár 2015

Málsnúmer 2014100005Vakta málsnúmer

Gjaldskrá fyrir heimaþjónustu Akureyrarbæjar fyrir árið 2015 lögð fram.

Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti 3,4% hækkun gjaldskrár fyrir heimaþjónustu Akureyrarbæjar frá 1. janúar 2015 og vísar málinu til bæjarráðs.

3.Fjárhagsáætlun 2015 - félagsmálaráð

Málsnúmer 2014080057Vakta málsnúmer

Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Bryndís Dagbjartsdóttir skrifstofustjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Margrét Alfreðsdóttir skrifstofustjóri búsetudeildar, Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar og Heiðrún Björgvinsdóttir skrifstofustjóri Öldrunarheimila Akureyrar lögðu fram fjárhagsáætlun 2015 fyrir sínar deildir.
Félagsmálaráð samþykkir framlagðar áætlanir og vísar þeim til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 16:33.