Félagsmálaráð

1128. fundur 24. ágúst 2011 kl. 14:00 - 17:16 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Jóhann Ásmundsson
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Margrét Guðjónsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Starfsáætlun félagsmálaráðs 2010-2014

Málsnúmer 2011010043Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð tók til umræðu starfsáætlun og stefnumótun ráðsins fyrir árin 2011 - 2014. Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Karolína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Anna Marit Nielsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynntu stöðu mála og fyrirliggjandi verkefni.

Unnið verður áfram að starfsáætlun í samvinnu við starfsfólk og drög að starfsáætlun tekin fyrir í samhengi við fjárhagsáætlunargerð.

2.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - kvörtun vegna synjunar um að komast á biðlista

Málsnúmer 2011080028Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi báru upp erindi um endurupptöku máls vegna fyrri synjana um að fara inn á biðlista fyrir leiguíbúðir Akureyrarbæjar. Lagt fram minnisblað Jóns Heiðars Daðasonar, húsnæðisfulltrúa dags.18.08 2011.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Fjölsmiðjan á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk 2011

Málsnúmer 2011070007Vakta málsnúmer

Erindi dags. 4. júlí 2011 frá forstöðumanni Fjölsmiðjunnar á Akureyri þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2011. Erlingur Kristjánsson mætir á fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð þakkar Erlingi fyrir góða kynningu á mikilvægu starfi Fjölsmiðjunnar. Ráðið samþykkir að verða við umbeðnum rekstrarstyrk að upphæð kr. 4.000.000.- fyrir árið 2011. Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra Fjölskyldudeild var falið að vinna að drögum að rekstrarsamningi fyrir árið 2012.

4.Fjölskyldudeild - ársskýrsla 2010

Málsnúmer 2011080066Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldudeildar lagði fram til kynningar ársskýrsla Fjölskyldudeildar fyrir árið 2010.

Félagsmálaráð þakkar áhugaverða og vel unna skýrslu.

5.Skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. Skýrsla unnin af stjórnendum og fagfólki á heilbrigðisst

Málsnúmer 2011080053Vakta málsnúmer

Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti skýrslu um skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi sem unnin var af stjórnendum og fagfólki á heilbrigðsstofnunum á Norðurlandi vorið 2011.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Fundi slitið - kl. 17:16.