Bæjarráð

3461. fundur 04. júní 2015 kl. 08:30 - 10:34 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Edward Hákon Huijbens áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Edward Hákon Huijbens V-lista mætti í fjarveru Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019

Málsnúmer 2015040196Vakta málsnúmer

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og lagði fram tillögu að fjárhagsáætlunarferli og gögn vegna tekjuáætlunar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2016-2019.
Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.

2.Tónræktin - styrkbeiðni 2015

Málsnúmer 2015050153Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 21. maí 2015 frá forsvarsmönnum Tónræktarinnar þar sem óskað er eftir 20.000 króna framlagi á hvern nemanda á önn frá Akureyrarbæ á næsta skólaári.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og afla frekari gagna.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerð

Málsnúmer 2014100184Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 28. maí 2015. Fundargerðin er í 6 liðum.
Bæjarráð vísar 1. lið til búsetudeildar og húsnæðisdeildar, 2. lið til framkvæmdadeildar, 3. lið til framkvæmdaráðs, 4. lið til skipulagsdeildar, 5. lið til bæjarstjóra og 6. lið til búsetudeildar.

4.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð aðalfundar

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 90. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar - aðalfundur - dagsett 26. maí 2015 auk skýrslu stjórnar hverfisráðs. Fundargerðina og skýrslu stjórnar hverfisráðsins má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

5.Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis - fundargerð

Málsnúmer 2015020006Vakta málsnúmer

Lögð fram 55. fundargerð hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dagsett 20. maí 2015.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/lunda-og-gerdahverfi/fundargerdir
Bæjarráð vísar 4. lið a) og seinni hluta 4. b) til framkvæmdadeildar og fyrri hluta 4. liðar b) til skipulagsdeildar, aðrir liðir fundargerðarinnar eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

6.Greið leið ehf - ársreikningur 2014

Málsnúmer 2015050125Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Greiðrar leiðar ehf fyrir árið 2014.

Fundi slitið - kl. 10:34.