Bæjarráð

3410. fundur 15. apríl 2014 kl. 19:15 - 19:47 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Njáll Trausti Friðbertsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista mætti í forföllum Odds Helga Halldórssonar.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti í forföllum Ólafs Jónssonar.

1.Leikfélag Akureyrar - staða rekstrar

Málsnúmer 2011080046Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, erindi dags. 7. apríl 2014 frá stjórn Leikfélags Akureyrar þar sem óskað er eftir því við bæjarráð að það taki til skoðunar tillögu sem miðar að því að verja stöðu leiklistar sem atvinnugreinar á Akureyri. Áður á dagskrá bæjarráðs 10. apríl sl.

Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfan að fjalla um þennan lið. Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarráð og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Bæjarráð samþykkir að flýta greiðslum ársins 2014 til þess að greiða skuldir og að standa við skuldbindingar sem þegar hefur verið stofnað til vegna leikárs 2013-2014.

Bæjarráð getur hinsvegar ekki fært fjármagn frá árinu 2015 til ársins 2014, þar sem að það verður ekki í þess höndum að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir það ár.

Með þessu er bæjarráði ljóst að Leikfélag Akureyrar getur ekki staðið við skuldbindingar um framleiðslu á leiklist það sem eftir lifir ársins 2014.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju með að viðræður um samrekstur Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, séu komnar á fullt skrið. Ljóst er að í nýju sameinuðu félagi gefast aukin tækifæri til þess að standa fyrir metnaðarfullri leiklistarframleiðslu á Akureyri undir merkjum Leikfélags Akureyrar.

Logi Már Einarsson S-lista sat hjá við afgreiðslu.

Sigurður Guðmundsson A-lista óskar bókað:

Ég tel eðlilegt í ljósi þessa að framkvæmdastjóri og stjórn LA í heild sinni víki eigi síðar en 1. júní nk.

2.Ársreikningur Akureyrarbæjar 2013

Málsnúmer 2013110024Vakta málsnúmer

Ársreikningur Akureyrarbæjar 2013.

Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2013 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2013-2014

Málsnúmer 2013100131Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 10. apríl 2014. Fundargerðin er í 4 liðum.

Bæjarráð vísar 1. og 3. lið til starfsmannastjóra, 2. lið til framkvæmdadeildar.

4. liður er lagður fram til kynningar í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 19:47.