Bæjarráð

3284. fundur 01. september 2011 kl. 09:00 - 11:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn

Málsnúmer 2011050032Vakta málsnúmer

Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

Bæjarráð þakkar þeim Brit og Margréti yfirferðina.

Þegar hér var komið mætti bæjarstjóri á fundinn kl. 09:45.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri lagði fram drög að tekjuáætlun og fjárhagsramma ásamt öðrum forsendum fjárhagsáætlunar ársins 2012.

Fundi slitið - kl. 11:05.