Bæjarráð

3818. fundur 07. september 2023 kl. 08:45 - 09:59 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
  • Olga Margrét Kristínard. Cilia
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Inga Dís Sigurðardóttir M-lista mætti í forföllum Hlyns Jóhannssonar.

1.Íbúaapp Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2023090105Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu og næstu skref varðandi íbúaapp Akureyrarbæjar.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs, Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar og Anna Karen Kristinsdóttir verkefnastjóri stafrænnar þróunar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð fagnar þeim góðu viðtökum sem íbúappið hefur fengið. Búið er að skilgreina meginmarkmið fyrir annan áfanga og á þeim grunni stendur til að þróa nýja virkni eftir hugmyndasöfnun meðal íbúa. Mikilvægt er að samhliða þeirri vinnu verði lögð áhersla á að kynna núverandi möguleika í appinu, svo sem ábendingagátt og rafrænt gámakort.

2.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - ársfundur 2023

Málsnúmer 2023090076Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. september 2023 frá innviðaráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 20. september nk. á Hilton Nordica í Reykjavík. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 14. september.
Bæjarráð felur Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra að sækja ársfundinn fyrir hönd Akureyrarbæjar.

3.Boð á málþing um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir

Málsnúmer 2023082224Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 29. ágúst 2023 þar sem Byggðastofnun býður til málþings um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir fimmtudaginn 5. október nk. Málþingið verður haldið á félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn kl. 10:30-16:20. Ráðgert er að viðburðurinn verði einnig sendur út í streymi.

4.Félag stjórnenda leikskóla - kjarasamningur 2023 - 2024

Málsnúmer 2023082258Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningum Félags stjórnenda leikskóla við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjórum mannauðssviðs og fjársýslusviðs að gera viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.

5.Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2023 - 2024

Málsnúmer 2023082257Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Skólastjórafélags Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjórum mannauðssviðs og fjársýslusviðs að gera viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.

Fundi slitið - kl. 09:59.