Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

526. fundur 29. janúar 2015 kl. 13:00 - 14:10 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Álfabyggð 8 - stöðuleyfi fyrir bát

Málsnúmer 2015010161Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. janúar 2015 þar sem Níels Einarsson sækir um stöðuleyfi fyrir bát við Álfabyggð 8. Meðfylgjandi er afstöðuskissa og tölvupóstur með samþykki nágranna.
Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til 31. júlí 2015.

2.Furuvellir 11 - skil á teikningum

Málsnúmer 2014100015Vakta málsnúmer

Erindi sem samþykkt var 20. nóvember 2014 þar sem Orri Árnason f.h. Endurvinnslunnar hf., kt. 610789-1299 sótti um leyfi fyrir breytingum við Furuvelli 11. Embættið óskaði í kjölfarið eftir leiðréttum teikningum, sem hafa ekki borist þrátt fyrir ítrekun 9. desember 2014 og 21. janúar 2015.
Skipulagsstjóri gefur umsækjanda frest til 10. febrúar 2015 til að skila inn leiðréttum gögnum. Að öðrum kosti verður samþykkt á byggingaráformum felld úr gildi.

3.Rangárvellir hús 5 - umsókn um leyfi til breytinga á 1. hæð

Málsnúmer 2011100076Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. október 2014 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, óskar eftir samþykki á reyndarteikningum fyrir húsin á lóðinni við Rangárvelli ásamt brunahönnun af húsi nr. 5, matshluta 04. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur og brunahönnun frá Eflu.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Fiskitangi 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090185Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. janúar 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 4 við Fiskitanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Álfabyggð 4 - umsókn um viðbyggingu

Málsnúmer 2015010244Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. janúar 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Reglu Karmelsystra ahgh. Jesú, kt. 410601-3380, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Álfabyggð 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 14:10.