Fiskitangi 4 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2014090185

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 510. fundur - 24.09.2014

Erindi dagsett 18. september 2014 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um leyfi til að breyta suð-vestur hluta byggingar í verkstæði, stækka hurð á vesturhlið, setja glugga á suðurhlið, stækka op í loftaplötu og setja upp milliveggi. Um er að ræða færslu á verkstæði sem þegar er til staðar á öðrum stað í byggingunni nr. 4 við Fiskitanga.
Meðfylgjandi eru tillöguteikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út takmarkað byggingarleyfi fyrir breytingunum.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 526. fundur - 29.01.2015

Erindi dagsett 23. janúar 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 4 við Fiskitanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 527. fundur - 12.02.2015

Erindi dagsett 23. janúar 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 4 við Fiskitanga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 2. febrúar 2015.
Skipulagsstjóri hefur móttekið nýtt erindi um breytingar á húsnæðinu og mun afgreiða endanlegt byggingarleyfi undir því máli (málsnúmer 2015020040).

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 531. fundur - 12.03.2015

Erindi dagsett 5. mars 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um leyfi til breytinga vegna bráðabirgða notkunar rýmis fyrir pökkun. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 532. fundur - 19.03.2015

Erindi dagsett 5. mars 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Útgerðarfélags Akureyringa ehf., kt. 500209-0620, sækir um leyfi til breytinga vegna bráðabirgða notkunar rýmis fyrir pökkun. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkominn teikning 17. mars 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.