Rangárvellir hús 5 - umsókn um leyfi til breytinga á 1. hæð

Málsnúmer 2011100076

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 370. fundur - 26.10.2011

Erindi dagsett 19. október 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Norðurorku hf, kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss á 1. hæð í húsi 5 að Rangárvöllum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 526. fundur - 29.01.2015

Erindi dagsett 8. október 2014 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, óskar eftir samþykki á reyndarteikningum fyrir húsin á lóðinni við Rangárvelli ásamt brunahönnun af húsi nr. 5, matshluta 04. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur og brunahönnun frá Eflu.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.