Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

413. fundur 12. september 2012 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Daggarlundur 12 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012080098Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. ágúst 2012 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Hafþórs Helgasonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 12 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar nýjar teikningar og gátlisti 5. september 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Kaupvangsstræti 1 - umsókn um leyfi fyrir kvisti á suðurhlið

Málsnúmer 2012080050Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. ágúst 2012 þar sem Gísli Gestsson f.h. Ljósmyndavara ehf., kt. 540174-0409, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á vesturálmu hússins að Kaupvangsstræti 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Örn Sigurðsson. Innkomnar nýjar teikningar 7. september 2012.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

3.Ljómatún 2-14 - umsókn um eldstæði í íbúð nr. 6

Málsnúmer 2012090057Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Kristins Tómassonar og Guðbjargar Ingu Ragnarsdóttur sækir um að setja eldstæði ásamt reykháfi í íbúð nr. 6 við Ljómatún 2-14. Meðfylgjandi eru teikningar með skýringum eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

4.Múlasíða 6a - umsókn um byggingarleyfi fyrir geymsluskúr

Málsnúmer 2012090139Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. september 2012 þar sem Bjarni Ásmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir geymsluskúr á raðhúsalóð nr. 6a við Múlasíðu. Meðfylgjandi er afstöðumynd, útlitsmynd og skriflegt samþykki íbúa raðhússins.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Óseyri 5 - umsókn um að skipta rými 0103 í tvær eignir

Málsnúmer 2012090041Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Hringbergs ehf., kt. 480607-0900, og Alps ehf., kt. 540400-2290, sækir um að skipta rými 0103 að Óseyri 5 í tvær eignir. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Hafnarstræti 107b - reyndarteikningar og skúr

Málsnúmer 2011060073Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. september 2012 þar sem Ingibjörg Baldursdóttir f.h. Ingimarshúss, kt. 670511-0220, leggur inn reyndarteikningar og sækir jafnframt um leyfi til að setja upp við húsið að Hafnarstræti 107b lítinn óupphitaðan geymsluskúr fyrir útihúsgögn og fl. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svein Valdimarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu málsins.

7.Krókeyrarnöf 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir lóðarvegg

Málsnúmer 2012090142Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2012 þar sem Anton Ingi Þórarinsson og Jóhanna Ágústa Stefánsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir lóðarvegg utan um lóð sína að Krókeyrarnöf 8 er liggur að lóðarmörkum Krókeyrarnafar 6, 10 og 12. Einnig er sótt um stækkun á bílastæði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson og samþykki nágranna.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Langahlíð 7a - umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu og breytingum

Málsnúmer 2012070087Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. júlí 2012 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Jóns Kristjáns Kristjánssonar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á íbúð og breytingum innanhúss. Einnig er sótt um viðbyggingu við bílskúr en með fyrirvara um samþykkt á deiliskipulagsbreytingu. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Rögnvald Harðarson. Innkomnar nýjar teikningar og gátlisti 30. ágúst 2012. Innkomnar nýjar teikningar og skráningartafla 10. september 2012.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.