Krókeyrarnöf 8 - umsókn um byggingarleyfi fyrir lóðarvegg

Málsnúmer 2012090142

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 413. fundur - 12.09.2012

Erindi dagsett 5. september 2012 þar sem Anton Ingi Þórarinsson og Jóhanna Ágústa Stefánsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir lóðarvegg utan um lóð sína að Krókeyrarnöf 8 er liggur að lóðarmörkum Krókeyrarnafar 6, 10 og 12. Einnig er sótt um stækkun á bílastæði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson og samþykki nágranna.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.