Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

373. fundur 16. nóvember 2011 kl. 13:00 - 15:10 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Ólafur Jakobsson
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hólsgerði 1 - umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2011080037Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. ágúst 2011 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Vignis Kárasonar sækir um leyfi fyrir tengibyggingu milli íbúðarhúss og bílskúrs að Hólsgerði 1. Innkomnar nýjar teikningar og gátlisti eftir Loga Má Einarsson 8. nóvember 2011.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

2.Helgamagrastræti 12 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2011110065Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. nóvember 2011 þar sem Birgir Wendel Steinþórsson sækir um að gera bílastæði við hús sitt að Helgamagrastræti 12.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu erindisins þar sem samþykki meðeigenda vantar.

3.Hrafnabjörg 1 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN090245Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2011 þar sem Viggó Benediktsson f.h. Höfðahúss ehf., kt. 551105-0750, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Hrafn Hlöversson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

4.Aðalstræti 7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalalokun

Málsnúmer 2011100129Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. október 2011 þar sem Þröstur Sigurðsson f.h. Rúnars Kristdórssonar óskar eftir byggingarleyfi fyrir svalaskýli á svölum 3. hæðar á húsinu að Aðalstræti 7. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson. Innkomnar nýjar teikningar 11. nóvember 2011.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

5.Hamratún 22 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011110071Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2011 þar sem Jóhann Ólafur Þórðarson f.h. Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 22 við Hamratún, jafnframt er sótt um graftrarleyfi. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Einar Stefánsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu á teikningum með vísan í athugasemdir á fylgiblaði og samþykkir að veita takmarkað byggingarleyfi til að grafa út fyrir húsinu.

6.Hamratún 24 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2011110072Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2011 þar sem Jóhann Ólafur Þórðarson f.h. Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 24 við Hamratún, jafnframt er sótt um graftrarleyfi. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Einar Stefánsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu á teikningum með vísan í athugasemdir á fylgiblaði og samþykkir að veita takmarkað byggingarleyfi til að grafa út fyrir húsinu.

7.Hamratún 24 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011110072Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2011 þar sem Trétak ehf., kt. 551087-1239, sækir um að vera byggingarstjóri við nýbyggingu að Hamratúni 24. Umboð hefur Jóhann Ólafur Þórðarson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Hamratún 22 - umsókn um byggingarstjóra

Málsnúmer 2011110071Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. nóvember 2011 þar sem Trétak ehf., kt. 551087-1239, sækir um að vera byggingarstjóri við nýbyggingu að Hamratúni 22. Umboð hefur Jóhann Ólafur Þórðarson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

9.Undirhlíð 1-3 - umsókn um breytta aðkomu

Málsnúmer BN080385Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. nóvember 2011 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggir ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi til að breyta aðkomu að bílastæðum ofan- og neðanjarðar við Undirhlíð 1-3. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

10.Brekkugata 1b - breyting á skráningu

Málsnúmer 2011030190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. nóvember 2011 þar sem Ragnheiður Sverrisdóttir f.h. Þórhalls Matthíassonar sækir um að breyta skráningu 2., 3. og 4. hæðar á húsi sínu að Brekkugötu 1b. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Luigi Bartolozzi.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.

Fundi slitið - kl. 15:10.