Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

580. fundur 31. mars 2016 kl. 13:00 - 14:20 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
  • Björn Jóhannsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Fjölnisgata 1a - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2013120008Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Hringbergs ehf., kt. 480607-0900, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Fjölnisgötu 1a. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

2.Kjarnagata 29 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer BN060292Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Kjarnagötu 29. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

3.Jaðar - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2016030021Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. mars 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar, kt. 570169-7169, sækir um breytingar innanhúss í golfskála Jaðars. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomin teikning 29. og 31. mars 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

4.Hólmatún 2 - Naustaskóli - umsókn um byggingarleyfi fyrir 2. áf.

Málsnúmer 2011040011Vakta málsnúmer

Erindi móttekið 1. október 2013 þar sem Magnús Garðarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Naustaskóla að Hólmatúni 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Björgúlfsson dagsettar 3. mars 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

5.Austurvegur 12 - umsókn um breytta notkun

Málsnúmer 2016030163Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 19. mars 2016 þar sem Birgir Snorrason og Kristín Petra Guðmudsdóttir sækja um breytta notkun á hluta hússins að Austurvegi 12 í Hrísey til að nýta fyrir kaffihús í flokki II. Meðfylgjandi er teikning eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

6.Viðburðir - götu- og torgsala 2016

Málsnúmer 2015120155Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Óli Þór Jónsson f.h. Benediktu ehf., kt. 470212-0390, sækir um leyfi fyrir aðstöðuskúr fyrir rafhjólaleigu norðan Hafnarstrætis 101.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem svæðið er ætlað fyrir torgsöluvagna og senuvagn.

7.Langahlíð 18 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2014020138Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. mars 2016 þar sem Sigurður Bárðarson og Álfhildur Ólafsdóttir sækja um framlenginu á samþykkt byggingaráforma, sem samþykkt voru 3. apríl 2014, til tveggja ára.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

8.Drekagil 16 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016030188Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Garðar Helgason sækir um að gera bílastæði við íbúð nr. 16 á lóð nr. 10 - 16 við Drekagil. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og mynd.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem almenn umferð meðfram leiksvæðinu er óheimil og mælist til þess að lokað verði fyrir slíka umferð.

Fundi slitið - kl. 14:20.