Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

959. fundur 21. mars 2024 kl. 13:30 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason eftirlitsmaður
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Oddeyrarbót 2 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2024030461Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. mars 2024 þar sem Rannveig Grétarsdóttir fyrir hönd Hvalaskoðunar Akureyrar ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gáma við lóð nr. 2 að Oddeyrarbót.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til 1. september 2024.

2.Kjarnagata 2 - umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)

Málsnúmer 2024030808Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. mars 2024 þar sem Orkan IS ehf. sækir um niðurrif á bensínstöðinni Kjarnagötu 2.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Matthíasarhagi 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024030720Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. mars 2024 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd T21 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á 2 hæðum á lóð nr. 8 við Matthíasarhaga. Innkomin gögn eftir Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Laxagata 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022020997Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. febrúar 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Prashant Babubhai Patel sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 4 við Laxagötu. Fyrirhugað er að breyta mhl. 02 í 3 gistieiningar. Innkomin ný gögn 13. mars 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Krókeyrarnöf 19 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024031067Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. mars 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Sigurðar Karls Jóhannessonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 19 við Krókeyrarnöf. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 14:00.