Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

957. fundur 07. mars 2024 kl. 13:15 - 13:40 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fundarritari
  • Hjálmar Árnason eftirlitsmaður
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Strandgata 53 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024020602Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. febrúar 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmssom fyrir hönd Vitans veitinga ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss ásamt opnun milli matshluta 01 og 02 í húsi nr. 53 við Strandgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Furuvellir 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024021044Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. febrúar 2024 þar sem Sigurður Hafsteinsson fyrir hönd Furuvalla 5 ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einni hæð ofan á hús nr. 5 við Furuvelli. Innkomin gögn eftir Sigurð Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Helgamagrastræti 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024021230Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. febrúar 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Valþórs Inga Einarssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild til að setja nýjan glugga og hurð á vesturhlið hússins ásamt breytingum innanhúss í húsi nr. 5 við Helgamagrastræti. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

4.Fálkafell - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024021287Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. febrúar 2024 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Skátafélagsins Klakks sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir nýjum skála í Fálkafelli. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Steindórshagi 1-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021070165Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. febrúar 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HHS verktaka ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum húss nr. 1-7 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Tryggvabraut 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023011423Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. febrúar 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:40.