Tryggvabraut 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023011423

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 901. fundur - 02.02.2023

Erindi dagsett 26. janúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 903. fundur - 16.02.2023

Erindi dagsett 26. janúar 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut. Innkomnar nýjar teikningar 13. febrúar 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 930. fundur - 24.08.2023

Erindi dagsett 18. ágúst 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 957. fundur - 07.03.2024

Erindi dagsett 27. febrúar 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Hölds ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum innandyra í húsi nr. 5 við Tryggvabraut.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.