Steindórshagi 1-7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021070165

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 821. fundur - 08.07.2021

Erindi dagsett 2. júlí 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HHS verktaka ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 1-7 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 824. fundur - 29.07.2021

Erindi dagsett 2. júlí 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HHS verktaka ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi nr. 1-7 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson. Innkomnar nýjar teikningar 26. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 957. fundur - 07.03.2024

Erindi dagsett 21. febrúar 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HHS verktaka ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum húss nr. 1-7 við Steindórshaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.