Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

942. fundur 23. nóvember 2023 kl. 13:00 - 13:50 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Dalsbraut 1H - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023110892Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Hika ekki ehf. sækir um byggingarheimild fyrir breytingum á innra skipulagi húss nr. 1H við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Jaðar - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023110697Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Golfklúbbs Akureyrar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir æfingarhúsi að Jaðri.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Freyjunes 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023110617Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. nóvember 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Sjafnar ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir viðbyggingu við hús nr. 4 við Freyjunes, Akureyri.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Óseyri 1 - umsókn um byggingarleyfi (niðurrif)

Málsnúmer 2023110935Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. nóvember 2023 þar sem Módelhús ehf. sækir um niðurrif á húsi nr. 1 við Óseyri.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:50.