Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

922. fundur 29. júní 2023 kl. 13:00 - 14:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Skarðshlíð 20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060462Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júní 2023 þar sem Birgir Teitsson fyrir hönd Byggingarfélagsins Hyrnu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 20 við Skarðshlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Teitsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Dalsbraut (KA svæði) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060490Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. júní 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stúku félagsheimili tengt núverandi íþróttahúsi á KA-svæðinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Gleráreyrar 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061420Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. júní 2023 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild í rými nr. 39 á Glerártorgi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Langamýri 30 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023061533Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. júní 2023 þar sem Rut Guðbrandsdóttir sækir um úrtak á kantsteini við bílastæði húss nr. 30 við Löngumýri. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði samkvæmt meðfylgjandi teikningu og úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

5.Goðanes 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060718Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. júní 2023 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 2 við Goðanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

6.Týsnes 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. júní 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd T4 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir lóð nr. 4 við Týsnes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

7.Oddeyrarbót 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061408Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. júní 2023 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Keli Sea Tours sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 1 við Oddeyrarbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hugrúnu Þorsteinsdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:00.