Langamýri 30 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2023061533

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 922. fundur - 29.06.2023

Erindi dagsett 27. júní 2023 þar sem Rut Guðbrandsdóttir sækir um úrtak á kantsteini við bílastæði húss nr. 30 við Löngumýri. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði samkvæmt meðfylgjandi teikningu og úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.