Dalsbraut (KA svæði) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023060490

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 922. fundur - 29.06.2023

Erindi dagsett 9. júní 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stúku félagsheimili tengt núverandi íþróttahúsi á KA-svæðinu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 925. fundur - 20.07.2023

Erindi dagsett 9. júní 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir áhorfendastúku og félagsheimili tengt núverandi íþróttahúsi á KA-svæðinu. Innkomnar nýjar teikningar 11. júlí 2023 eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 946. fundur - 21.12.2023

Erindi dagsett 11. desember 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir áhorfendastúku og félagsheimili tengt núverandi íþróttahúsi á KA-svæðinu. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.