Beykilundur 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022060569

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 869. fundur - 23.06.2022

Erindi dagsett 13. júní 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hildigunnar Rutar Jónsdóttur, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við suðurenda íbúðarhúss ásamt smávægilegum breytingum á innra skipulagi á húsi nr. 11 við Beykilund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 870. fundur - 30.06.2022

Erindi dagsett 13. júní 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hildigunnar Rutar Jónsdóttur, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við suðurenda íbúðarhúss ásamt smávægilegum breytingum á innra skipulagi á húsi nr. 11 við Beykilund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 30. júní 2022.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

Skipulagsráð - 384. fundur - 06.07.2022

Erindi dagsett 10. júní 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hildigunnar Rutar Jónsdóttur leggur inn fyrirspurn varðandi viðbyggingu við íbúðarhús á lóð nr. 11 við Beykilund. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.

Meðfylgjandi er samþykki eigenda Reynilundar 12 og Beykilundar 9 og tillöguteikningar.
Fyrir liggur að lóðarhafar Beykilundar 9 og Reynilundar 12 gera ekki athugasemdir við fyrirhuguð byggingaráform. Skipulagsráð samþykkir erindið og telur ekki þörf á grenndarkynningu með vísun í fyrrgreint samþykki. Er málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 871. fundur - 07.07.2022

Erindi dagsett 13. júní 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hildigunnar Rutar Jónsdóttur, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við suðurenda íbúðarhúss ásamt smávægilegum breytingum á innra skipulagi á húsi nr. 11 við Beykilund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Frey Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 30. júní 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.