Crossfit er á meðal þess sem í boði er á Sumarleikunum.
Sumarleikarnir standa nú yfir á Akureyri en þeir hófust með Hjólreiðahelgi Greifans um síðustu helgi. Á morgun hefst alþjóðleg mótaröð unglinga í golfi á Jaðarsvelli með keppendum víðsvegar að úr heiminum og um sjálfa verslunarmannahelgina verða fjölbreytilegir íþróttaviðburðir um allan bæ og skemmtidagskrá í Skátagilinu á föstudags- og laugardagskvöld. Sumarleikunum lýkur með Sparitónleikum á leikhúsflötinni við Samkomuhúsið á sunnudagskvöld.
Gestir Sumarleikanna geta tekið þátt í fjallahlaupi, hjólamóti, fjallabruni á hjólum, skemmtiskokki, crossfit ofurleikum, fjallgöngum og þríþraut UFA svo eitthvað sé nefnt.
Hljómsveitir, listamenn og skemmtikraftar sem fram koma á Akureyri um verslunarmannahelgina eru Skítamórall, María Ólafs, Gréta Salóme, Dúndurfréttir, Úlfur Úlfur, Made in Sveitin, Páll Óskar, Hvanndalsbræður, Dóri KÁ-AKÁ, Lína Langsokkur, Einar Mikael, Glowie og Shady.
Myllumerki helgarinnar eru #sumarleikarnir og #versloAK.
Heimasíða Sumarleikanna er www.sumarleikar.is og hér er dagskráin.