Fjórtánda Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju hefst sunnudaginn 19. apríl og verður fyrsti dagur hátíðarinnar að miklu leyti helgaður
minningu Davíðs Stefánssonar, skálds frá Fagraskógi. Hátíðin hefst með Davíðsmessu þar sem séra Karl
Sigurbjörnsson biskup prédikar. Tónlistin í messunni verður að mestu leyti við ljóð Davíðs. Ásamt Kór Akureyrarkirkju syngur
Elvý G. Hreinsdóttir og Birkir Blær Óðinsson leikur á gítar.
Að messu lokinni verður opnuð myndlistarsýning í Safnaðarheimilinu og kapellu þar sem þau Joris Rademaker og Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir sýna verk sín. Klukkan hálfeitt hefjast svo Davíðstónleikar þar sem þau Kristjana Arngrímsdóttir
söngkona og Kristján Eldjárn Hjartarson gítarleikari flytja lög við ljóð Davíðs Stefánssonar.
Sönghópurinn Hljómeyki flytur messu fyrir tvo kóra eftir Frank Martin ásamt fleiri verkum á tónleikum sem hefjast klukkan 17 í kirkjunni og um
kvöldið teygir hátíðin sig til Dalvíkur þar sem verður æðruleysismessa í Dalvíkurkirkju.
Þrennir hádegistónleikar verða haldnir í kirkjunni á Kirkjulistaviku. Mánudaginn 20. apríl leikur Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir orgelleikari verk eftir Mendelssohn, Scheidt og Boëllmann. Þriðjudaginn 21. apríl verður leikið á kontrabassa og orgel
þegar þeir Þórir Jóhannsson bassaleikari og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari flytja verk eftir Bach, Bruch og fleiri. Loks leikur hinn ungi og
efnilegi píanóleikari, Alexander Smári Edelstein, á flygil kirkjunnar miðvikudaginn 22. apríl. Aðgangur að hádegistónleikunum er
ókeypis.
Líf og fjör verður í Akureyrarkirkju alla hátíðardagana en smitast einnig út í samfélagið. Til dæmis verður haldið
námskeið í Biblíumatargerð í Naustaskóla, morgunsöngur verður í kapellu, Kaffi Ilmur rekur útibú í anddyri
Safnaðarheimilisins, Foreldramorgunn verður í Safnaðarheimilinu og opið hús hjá Æskulýðsfélaginu. Fimmtudaginn 23. apríl,
sumardaginn fyrsta, verður vorferð eldri borgara við Akureyrarkirkju farin til Grenivíkur undir fararstjórn sr. Hildar Eirar Bolladóttur.
Laugardaginn 25. apríl kl. 16 verður fræðslufyrirlestur í kapellu Akureyrarkirkju í samvinnu við Barokksmiðju Hólastiftis þar sem
fjallað verður um hinn mikla frumkvöðul kirkjutónlistar, dansk-þýska tónskáldið Dietrich Buxtehude. Aðgangur er ókeypis.
Lokadag Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju verður líka lokahátíð barnastarfsins í kirkjunni með messu klukkan ellefu, kaffihús og
myndlistarsýningar verða opnar og vikunni lýkur svo með hátíðartónleikum í Akureyrarkirkju kl. 17. Þar verður íslensk/ensk
tenging, flutt tónlist eftir Báru Grímsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Michael Jón Clarke, Sigfús Einarsson, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Charles Stanford, Ralph Vaughan-Williams og Samuel Wesley. Frumflutt verður nýtt íslenskt tónverk, Te Deum eftir Michael Jón Clarke. Fjórir kórar sameinast tónleikunum, Kór
Akureyrarkirkju, Kór Möðruvallaklausturskirkju, Hymnodia og félagar úr Kammerkór Norðurlands. Helena Guðlaug Bjarnadóttir syngur
einsöng, Ella Vala Ármannsdóttir leikur á horn og Eyþór Ingi
Jónsson á orgel. Stjórnandi er Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir. Aðgangseyrir kr. 2000.
Dagskrá Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju 2015 er að finna á vef Akureyrarkirkju, akureyrarkirkja.is.