Nýr frisbígolfvöllur vakti mikla lukku
Um 1300 manns voru á Hríseyjarhátíðinni sem haldin var um nýliðna helgi. Metaðsókn var í allar óvissuferðir, sem voru
klæðskerasniðnar fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Mikil ánægja gesta var með nýja uppákomu á hátíðinni „Kaffi í görðum”, en gestgjafar í sex görðum
buðu gestum og gangandi uppá kaffi og meðlæti. Veður var með eindæmum gott um helgina og afar góð stemning var í brekkusöngnum á
laugardagskvöldið. Varðeldur kraumaði og boðið var uppá söng með Ingó veðurguði, dans og almennan brekkusöng.