Dagur góðra verka

Skógarlundur.
Skógarlundur.

Opið hús verður í Skógarlundi, miðstöð virkni og hæfingar, og Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi á morgun, fimmtudaginn 22. maí, í tilefni Dags góðra verka þar sem kynnt verður starfsemi stofnana sem eiga aðild að Hlutverki - samtökum um vinnu og verkþjálfun.

Opið verður frá kl. 10.00 til 11.30 og frá kl. 13.00 til 15.00. Starfsfólk staðanna tekur vel á móti gestum og kynnir starfsemina. Allir eru hjartanlega velkomnir og hvattir til að koma og kynna sér það starf sem fram fer í Skógarlundi og PBI.

Plastiðjan Bjarg -Iðjulundur er til húsa að Furuvöllum 1.
Skógarlundur, miðstöð virkni og hæfingar, er í Skógarlundi 1.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan