Vorhreinsun að hefjast

Á Akureyri fer fram vorhreinsun í öllum hverfum bæjarins þegar snjór og klaki er farinn af götum og stéttum. Stofnbrautir, tengi- og safngötur, húsagötur og gönguleiðir eru sópaðar. 

Áður en sópað er í einstökum hverfum/húsagötum eru íbúar látnir vita á síðu viðkomandi hverfis á Facebook auk þess sem merkingar eru settar upp í hverfinu áður en byrjað er að sópa. Þvottur á götum er ekki hluti af þessari vorhreinsun, enda eru götur almennt sópaðar áður en þær eru þvegnar. 

Íbúar eru hvattir til að sópa og þrífa við hús sín áður en götur eru sópaðar. Til að auðvelda okkur þrifin eru íbúar hvattir til að færa bifreiðar sínar og önnur faratæki af almennum svæðum í götum. Ekki er farið inn fyrir lóðarmörk til að sópa.

Hér að neðan smá sjá tímaplan vorhreinsunar í þessari viku, en þetta er með fyrirvara um veður og framvindu verks. Í lok vikunnar verður nýtt verkplan auglýst.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan