Viltu reka skíða- og brettaskólann?

Hlíðarfjall auglýsir eftir áhugasömum aðila til að reka skíða- og brettaskóla Hlíðarfjalls og einkakennslu á komandi skíðavetri 2021-2022.

Ábyrgð á rekstri skólans verður hjá viðkomandi sem greiðir aðstöðugjald til Hlíðarfjalls. Innifalið í aðstöðugjaldi eru lyftukort og aðstaða í Skíðahótelinu.

Áhugasamir skulu senda inn greinargerð þar sem fram koma upplýsingar um menntun skíðakennara og reynslu þeirra af skíðakennslu, auk hugmynda um framkvæmd og rekstur skíða- og brettaskólans. Leggja skal fram gjaldskrá fyrir skíða- og brettaskólann og einkakennslu. Skilyrði er að kennarar sem koma að kennslu í skólanum hafi hreint sakavottorð.

Frestur til að skila inn greinargerð er til mánudagsins 18. október nk. Senda skal greinargerðina á netfangið brynjar.helgi@hlidarfjall.is.

Nánari upplýsingar veitir Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður Hlíðarfjalls.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan