Markaðsstofa Norðurlands stendur fyrir samgönguþingi í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13.30. Þar verður fjallað um samgöngur á landi og í lofti frá sjónarhorni ferðaþjónustunnar. Dagskrá þingsins má sjá hér að neðan og eru allir hvattir til að mæta á þingið og taka þátt í umræðunum. Þátttaka er án endurgjalds en fólk er þó beðið að skrá sig fyrirfram hér.
Dagskrá hefst kl. 13.30
- Setning: Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri
- Erindi: Birna Lárusdóttir formaður samgönguráðs
- Áherslur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi: Hjalti Páll Þórarinsson verkefnastjóri MN og flugklasans Air66N
- Flugrúta sem nær lengra: Þórir Garðarsson stjórnarformaður og eigandi Gray Line Iceland
- Vegasamgöngur og ferðaþjónusta til framtíðar: Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
- Pallborðsumræður
- Kaffihlé kl. 15.0015.30
- Innanlandsflug lífæð almenningssamgangna: Jón Karl Ólafsson framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia
- Akureyri International Airport: Hjördís Þórhallsdóttir umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi
- Samskipti við flugrekstraraðila: Ingvar Örn Ingvarsson verkefnastjóri hjá Íslandsstofu
- Icelandair, þróun og stefna: Helgi Már Björgvinsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair
- Pallborðsumræður
- Þingslit kl. 17.00 léttar veitingar í boði Akureyrarbæjar
- Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands