Úttekt á gervigrasi í Boganum

Mynd: Páll Jóhannesson.
Mynd: Páll Jóhannesson.

Akureyrarbær stóð nýverið fyrir úttekt á gervigrasinu í Boganum. Tilgangurinn var að fá óháðan aðila til að meta ástand gervigrasvallarins og hvort gæði væru í samræmi við kröfur Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA).

Úttektin var gerð af fyrirtækinu Sports Labs þann 4. mars sl. og liggja fyrir niðurstöður. Af þeim sex atriðum sem voru skoðuð sérstaklega má segja að völlurinn hafi staðist skoðun í fimm tilvikum, en sléttleiki vallarins gæti hins vegar verið betri.

Boginn er mikið notaður til æfinga og keppni flesta daga ársins, bæði af börnum og fullorðnum, og því skiptir miklu máli að gæði vallarins séu fullnægjandi. Skipt var um gervigras árið 2016. Fyrr í vetur var gert við helstu skemmdir á vellinum og í kjölfarið ráðist í umrædda úttekt, auk þess sem vinna hófst í samstarfi Akureyrarbæjar og umsjónaraðila Bogans um bætt verklag varðandi umhirðu og viðhald. Þá hefur tækjakostur verið bættur, meðal annars til þess að bleyta völlinn og losa upp gúmmí til þess að mýkja völlinn. Samkvæmt niðurstöðum úttektarinnar er mýkt vallarins í samræmi við staðla FIFA.

Fræðslu- og lýðheilsuráð fjallaði um niðurstöður úttektarinnar á fundi sínum í vikunni og óskaði eftir því við umhverfis- og mannvirkjaráð að í sumar verði farið í viðgerðir á ójöfnum. Að loknum viðgerðum skuli gerð önnur úttekt á ástandi vallarins og niðurstöður þeirrar úttektar kynntar hlutaðeigandi aðilum og fræðslu- og lýðheilsuráði með tilliti til fjárhagsáætlunarvinnu ráðsins fyrir árið 2023.

Eftir samráð við forsvarsmenn KA og Þórs óskaði ráðið einnig eftir því við umhverfis- og mannvirkjaráð að teknir verði saman möguleikar, ásamt kostnaði, kostum og göllum á búnaði í til að bleyta gervigrasið í Boganum fyrir leiki og æfingar.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan