Úthlutað úr Safnasjóði til Listasafnsins og Minjasafnsins

Úthlutun styrkjanna fór fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Mynd af heimasíðu safnaráðs.
Úthlutun styrkjanna fór fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Mynd af heimasíðu safnaráðs.

Á þriðjudag fór fram í Reykjavík aðalúthlutun 2024 úr safnasjóði. Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja D. Alfreðsdóttir, úthlutaði að þessu sinni 176.335.000 kr. og brautargengi hlutu m.a. verkefni á vegum Listasafnsins á Akureyri og Minjasafnsins á Akureyri.

Safnasjóði bárust alls 150 umsóknir frá 49 aðilum að heildarupphæð rúmlega 312 milljónum króna fyrir aðalúthlutun úr safnasjóði árið 2024.

Veittir voru 107 styrkir til eins árs að heildarupphæð 166.335.000 kr. til 46 styrkþega og tvær öndvegisumsóknir fá auk þess styrk fyrir árið 2024.

Skv. 7. mgr. 22. gr. safnalaga úthlutar ráðherra styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs.

„Úthlutunin úr safnasjóði endurspeglar þá miklu breidd sem er í safnastarfi hringinn í kringum landið. Söfn gegna mikilvægu hlutverki í menningarlífi þjóðarinnar, bæði að vernda og miðla sögu okkar og menningararfi og kynna hann fyrir erlendum ferðmönnum sem heimsækja landið,“ segir Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Listasafnið á Akureyri hlaut styrk til þriggja verkefna samtals að upphæð 4.400.000 kr. og Minjasafnið hlaut styrk til þriggja verkefna að upphæð 6.100.000 kr.

Flugsafn Íslands hlaut einnig styrk til fjögurra verkefna að upphæð 5.150.000 kr.

Hér gefur að líta lista yfir eins árs styrki úr aðalúthlutun safnasjóðs 2024.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan