Útboð á rekstri grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í rekstur grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 31. janúar 2024.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Útboðsgögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugáttinni eftir að búið er að sækja um gögnin og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 11:00 föstudaginn 1. mars 2024.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.