Tökum höndum saman og hreinsum bæinn eftir veturinn

Mynd: María Helena Tryggvadóttir.
Mynd: María Helena Tryggvadóttir.

Akureyrarbær hvetur íbúa til að taka höndum saman við að hreinsa bæinn eftir veturinn.

Plokkdagurinn sem var haldinn 30. apríl sl. tókst mjög vel. Vorhreinsun sveitarfélagsins er einnig í fullum gangi og eru götur sópaðar af miklum krafti.

Nú höldum við áfram og er næsta skref að snyrta garða og gróður í kringum heimili og vinnustaði og taka þannig á móti sumrinu með brosi á vör.

Gámar undir garðaúrgang hafa verið settir á eftirfarandi staði og verða þar til 19. maí:

  • Bugðusíðu við leiksvæði
  • Aðalstræti sunnan Duggufjöru
  • Bónus við Kjarnagötu
  • Bónus Langholti
  • Krambúðin Byggðavegi
  • Nettó Hrísalundi

Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessa gáma en einnig er tekið við garðaúrgangi og fleiru á gámasvæði við Réttarhvamm og á móttökustöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli.

Athugið að starfsfólk Akureyrarbæjar mun ekki fjarlægja garðaúrgang frá lóðamörkum.

Afgreiðslutími gámasvæðisins við Réttarhvamm breytist í næstu viku þegar sumaropnun tekur gildi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan