Tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti lokað

Tjaldsvæðið Þórunnarstræti.
Tjaldsvæðið Þórunnarstræti.

Ákveðið hefur verið að loka tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti frá og með föstudeginum 21. ágúst sem er nokkru fyrr en venjulega.

Áfram verður opið á tjaldsvæðinu að Hömrum og full þjónusta veitt þar. Undanfarin ár hefur tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti yfirleitt verið lokað um miðjan september, en eftir 15. ágúst hafa nær allir gestir verið erlendir ferðamenn.

Með hliðsjón af takmörkunum á komur erlendra ferðamanna vegna Covid-19 og ferðavenjum Íslendinga hefur verið ákveðið að loka á föstudaginn. Gestum er því bent á glæsilegt tjaldsvæði Akureyrarbæjar að Hömrum þar sem er nóg pláss og góð þjónusta. Stefnan er að halda því opnu í allan vetur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan