Stuðningsfjölskyldur óskast

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir því að ráða stuðningsfjölskyldur í félagsþjónustu og þjónustu við fötluð börn sem fyrst.

Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barna, veita börnum tilbreytingu og stuðning, gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum og styrkja stuðningsnet þeirra.

Um er að ræða 1-2 helgar í mánuði þar sem börnin dvelja á heimili stuðningsfjölskyldunnar. Greiðslur til stuðningsfjölskyldu eru verktakagreiðslur.

Upplýsingar um starfið veitir Petra S. Heimisdóttir iðjuþjálfi í netfanginu petras@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar (undir umsóknir - velferðarmál). Þjónustugáttin er aðgengileg hér.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan