Skólaskák

Mynd af chess.com.
Mynd af chess.com.

Nú þegar skóladagur er skertur og skákkennsla í skólum liggur niðri hefur Skáksamband Íslands í samvinnu við grunnskóla á Norðurlandi eystra ákveðið að blása til netskákmóta fyrir grunnskólanemendur. Mótin verða alla fimmtudaga og hefjast klukkan 16.30 og standa í klukkustund.

Öllum grunnskólanemum í bænum er heimil þátttaka í þessum mótum. Fyrsta mótið er nú á fimmtudaginn kemur 2. apríl kl. 16.30 og stendur í klukkustund.

Þátttaka er einföld, en teflt er á netþjóninum chess.com.

1. Búa til aðgang á chess.com (ef aðgangur er ekki til staðar nú þegar). Aðgangur er ókeypis og einfalt að búa til aðgang: https://www.chess.com/register

2. Gerast meðlimur í hópnum "Skólaskák Norðurland eystra" : https://www.chess.com/club/skolaskak-nordurland-eystra

3. Skrá sig á mótið sem er hægt að gera frá 60 mínútum áður en þau hefjast. Hér er tengill á fyrsta mótið: https://www.chess.com/live#r=176167
Það þarf að ýta á "join" og svo bara bíða eftir að fyrsta skák byrji klukkan nákvæmlega 16.30. Eftir hverja skák byrjar alltaf ný skák um leið, gegn nýjum andstæðingi. Einungis þarf að klikka á "next match" þegar skákin er búin.

Til að tefla í mótinu þarf að notast við fartölvu eða borðtölvu. Chess.com appið virkar ekki í mótum.

Hér má sjá almennar leiðbeiningar um hvernig má skrá sig á chess.com.

Mótin verða alla fimmtudaga næstu vikurnar og hefjast alltaf klukkan 16.30. Að ofan er tengill á fyrsta mótið en til að vera með í mótum á næstunni þarf einfaldlega að mæta á chess.com frá 15.0 á fimmtudögum og skrá sig í mótið í gegnum hópinn "Skólaskák Norðurland eystra".

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan